Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Fjórðungsmót á Austurlandi

júlí 12, 2019 @ 8:00 f.h. - 5:00 e.h.

Fjórðungsmót hestamanna á Austurlandi, FM2019, verður haldið á félagssvæði Hornfirðings að Fornustekkum í Nesjum, dagana 11. – 14. júlí 2019. Tekin verður upp sú nýbreyttni að hafa opna gæðingakeppni á landsvísu í A- og B-flokki áhugamanna og keppni í barna-, unglinga- og ungmennaflokki. Með þessu vilja mótshaldarar stuðla að aukinni þátttöku áhugamanna og fjölskyldna þeirra. Til að styrkja fjórðungsmótið enn frekar var ákveðið að bjóða hestamannafélaginu Geysi í Rangárvallarsýslu, þátttökurétt á fjórðungsmótinu, að Fornustekkum. Þar með eru öll hestamannafélög á svæðinu frá Rangárvalarsýslu og norður í Eyjafjörð, með keppnisrétt á mótinu. Kynbótahrossum innan hrossaræktarsamtaka á sömu svæðum er boðin þátttaka í kynbótasýningu á mótinu, samtals 45 hross samkvæmt röð á stöðulista (4-8 hross í hverjum flokki) . Keppt verður í eftirtöldum keppnisgreinum á FM2019:
  • Gæðingakeppni A-flokkur, (3 flokkar) FM-úrtaka, Áhugamanna- og ungmennaflokkur
  • Gæðingakeppni B-flokkur, (2 flokkar) FM-úrtaka og Áhugamannflokkur
  • Barna-, Unglinga- og Ungmennaflokkur, FM-úrtaka/Opið
  • Tölti (T1), Opinn flokkur
  • Tölt (T3) Áhugamenn 21 árs og eldri, og 20 ára og yngri
  • Kappreiðar: 100m fljúgandi skeiði, 350m stökk og 500m brokk Boðið verður upp á fjölbreytta skemmtidagskrá: Skógeyjarútreið, grillveislu, kvöldvöku í Stekkhól, Ræktunarbússýningar, og Sveitaball í Mánagarði. Á félagssvæði Hornfirðings að Fornustekkum er keppnisvöllur, félagsheimili, reiðhöll með sambyggðu hesthúsi, hesthúsahverfi, tjaldstæði, beitiland fyrir ferða- og keppnishesta og frábærar útreiðarleiðir. Fornustekkar eru í ca. 8 km fjarlægð frá Höfn og öll þjónusta er til staðar, s.s. hótel, gistiheimili, tjaldstæði, úrval veitingastaða, Nettó-verslun, Lyfja, Vínbúðin, fatahreinsun, heilsugæsla, sundlaug, fjölbreytt íþróttaaðstaða og ýmis áhugaverð söfn á sviði menningar og lista. Hestamannafélagið Hornfirðingur
www.hornfirdingur.is

Details

Date:
júlí 12, 2019
Time:
8:00 f.h. - 5:00 e.h.