Lukku Láki frá Stóra Vatnsskarði

IS2009157651


Lukku-Láki hefur hlotið 1. verðlaun fyrir afkvæmi. 

Lukku-Láki gefur stór hross með fremur frítt höfuð. Hálsinn er langur og mjúkur en í meðallagi settur.

Afkvæmin eru fótahá og myndarleg. Fætur eru þurrir með góð sinaskil en nágengir að aftan. Hófar eru efnisþykkir með hvelfdan botn og prúðleiki er í rúmu meðallagi.

Afkvæmin hafa þjálan reiðvilja, töltið er jafnan best en fá sem skeiða að gagni. Töltið er takthreint og skrefmikið, brokkið er skrefmikið með góðri fótlyftu. Stökkið er teygjugott og fetið er yfir meðallagi.

Lukku-Láki gefur skrefmikil hross sem fara afar vel í reið með góðum höfuðburði


Hér gefur að líta glæsihross undan Lukku-Láka, þau eru skrefmikil og myndarleg.

Hæsti kynbótadómur, 2016 Kynbótamat, BLUB

SköpulagEinkunnBLUBAthugasemd
Höfuð8,0122Svipgott, bein neflína en slök eyrnastaða.
Háls, herðar og bógar
9,0111Reistur, langur, mjúkur og háar herðar.
Bak og lend7,597Öflug lend, áslend.
Samræmi9,0114Hlutfallarétt, langvaxið og fótahátt.
Fótagerð8,5113Öflugar sinar og prúðir fætur.
Réttleiki7,588Afturf. nágengir.
Hófar8,0112Sléttir og efnisþykkir
Prúðleiki8,5114
Sköpulag8,46120
KostirEinkunnBLUBAthugasemd
Tölt8,5115Há fótlyfta, taktgott og skrefmikið
Brokk9,0115Rúmt taktgott, skrefmikið og há fótlyfta.
Skeið9,0103Skrefmikið og öruggt
Stökk8,5113Ferðmikið og teygjugott.
Vilji og geðslag8,5112Vakandi og þjálni.
Fegurð í reið9,0125Mikið fas, góður höfuðburður og mikill fótaburður..
Fet8,0107Skrefmikið
Hægt tölt8,0113
Hægt stökk7,5
Hæfileikar8,70116
Aðaleinkun8,60120

Ættartré