Gaumur frá Auðsholtshjáleigu

S2001187053


Gaumur hefur hlotið heiðursverðlaun fyrir afkvæmi.

Gaumur gefur stór hross með skarpleitt höfuð og vel borin eyru. Hálsinn er reistur, langur og mjúkur en djúpur við háar herðar. Bakið er vöðvað og burðugt, lendin er öflug en afturdregin.

Afkvæmi Gaums eru fótahá og myndarleg á velli en nokkuð grófbyggð. Sinar á fótum eru öflugar og fæturnir þurrir en sinaskil oft lítil, afturfætur eru nágengir og framfætur útskeifir. Hófar eru prýðilegir, efnisþykkir og djúpir.

Prúðleiki er um meðallag. Gaumur gefur mikla ganghæfni, rými og góðan vilja. Töltið er taktgott með háu og rúmu skrefi og brokkið skrefmikið og taktgott.

Afreksvekringar eru í afkvæmahópnum en klárhross eru algengari. Stökkið er ferðmikið og hátt og yfirleitt takthreint á hægu. Fetið er yfir meðallagi og oftast taktgott.

Gaumur gefur stór og virkjamikil hross með ásækin vilja, mikla reisingu og góðan fótaburð.

Hæsti kynbótadómur, 2008

Kynbótamat, BLUB

SköpulagEinkunnBBLUBAthugasemd
Höfuð8,0109Bein neflína, myndarleg og vel opin augu.
Háls, herðar og bógar
8,0104Skásettir bógar, háar herðar, háls þykkur.
Bak og lend8,5107Mjúkt bak, löng og öflug lend.
Samræmi8,5117Hlutfallarétt, léttbyggt og fótahátt.
Fótagerð8,095Rétt fótstaða, sverir liðir, lítil sinaskil.
Réttleiki8,095
Hófar8,0115Sléttir og efnisþykkir
Prúðleiki8,099
Sköpulag8,13112
KostirEinkunnBLUBAthugasemd
Tölt .9,5119Rúmt, taktgott og skrefmikið
Brokk9,0116Rúmt taktgott og öruggt
Skeið8,596Ferðmikið og öruggt
Stökk8,0114Hátt
Vilji og geðslag9,5119Fjör og þjálni
Fegurð í reið9,0125Mikið fas, mikil reising og góður höfuðburður.
Fet8,0104
Hægt tölt8,5115
Hægt stökk8,0
Hæfileikar9,05115
Aðaleinkunn 8,69117

Ættartré